Hesthús úti á landi.
Gamall skólabróðir minn hafði samband við mig og vildi fá aðstoð með verkefni sem hann var að vinna í á bóndabæ norður í landi. Þar var m.a hesthús sem í eru þónokkrir hestar og hafði borið talsvert á einhverjum pirringi, bólgum í fótum og meira að segja sárum sem ekki gréru og fleira hjá hestunum. Meira að segja var farið að tala um uppskurð á einum hestinum vegna þessara mála. Minn gamli skólabróðir taldi sig vita nokkurn vegin hvað væri að gerast þarna en hafði frétt að ég væri talsvert að vinna í svona málum hér fyrir sunnan og vildi ásamt ábúandanum á bænum endilega fá annað álit. Þetta þótti mér áhugavert og var talsvert upp með mér að vera kallaður um svo langan veg til að finna lausnir á þessum vandamálum. Lagði ég því eldsnemma af stað í þennan leiðangur og mætti gallvaskur norður. Við ákváðum að taka hesthúsið fyrst þar sem mestu vandamálin voru þar. Komumst við að ýmsu. Það sem mér þótti einna alvarlegast var að spennugjafi fyrir rafmagnsgirðingu var staðsettur innst í hesthúsinu og jarðsambandið í hann var tengt beint inn á sökkulskaut hesthússins og olli miklum truflunum inni í húsinu.m.a miklu flökti á rafsegulsviðsmælinum mínum. Við mældum einnig mjög hátt rafsegulsvið inni í stíunni hjá einmitt þeim hesti sem hvað veikastur var búinn að vera og með sár undir snoppunni sem illa gekk að gróa og mjög bólgna fætur. Það vantaði einnig spennujöfnun á vatnslögnina fyrir drykkjarvatnið hjá hestunum. Það vantaði spennujöfnun á grindurnar fyrir stíurnar hjá hestunum og einnig á grindur sem eru fyrir gluggunum inni hjá hestunum. Svo komumst við að því að svokölluð skrefspenna mældist meira en 2 volt á samskeytum gólfplötu sem ekki hafði verið spennujöfnuð rétt þegar platan var steypt. Beint fyrir framan stíuna hjá veikasta hestinum. Hluti hennar hafði verið steypt síðar og gleymst að spennujafna. Eftirfarandi úrbætur voru gerðar : Spennugjafinn fyrir rafmagnsgirðinguna var færður út úr húsinu og tengt sérskaut fyrir jörðina. Vatnslögn og grindur, ásamt plötunni voru spennujafnaðar. Síðan var settur var straumbeinir í töflu sem snéri að þessum hluta hússins vegna flökkustrauma sem við mældum í þeim jarðbindingum sem fyrir voru. Um það bil mánuði síðar var ég í bandi við húsráðandann. Það er skemmst frá því að segja að árangurinn er ótrúlegur, hestarnir allt aðrir, sárin eru farin að gróa, bólgurnar eru farnar að minnka í fótum og pirringur og líðan almennt miklu betri. Það er magnað að sjá þetta á dýrunum því ekki hafa þau neina hugmynd um hvað við vorum að gera ! Þetta verkefni var mjög áhugavert og frábært að geta hjálpað til að finna lausnir.