Grafarholt

Maður milli 50-60 ára hafði samband við mig og vildi fá mælingu á rafsegusviði og flökkustraumum heima hjá sér.Hann býr í raðhúsalengju, 4 hús saman. Heimsótti ég hann og kom í ljós að hann var einnig með parkinson veiki sem honum fannst hafa versnað á síðustu árum. En það sem var verst hjá honum var svefnleysið sem hann hafði átt við að stríða síðustu 10 árin. Mældi ég hjá honum hvort flökkustraumar væru til staðar í íbúðinni hans en svo var ekki. Þegar ég fór svo að mæla rafsegulsviðið komst ég að dálitlu skuggalegu. Út úr veggnum í svefnherberginu hans geislaði mjög hátt rafsegulsvið og var það langhæst hans megin í rúminu. Það fjaraði út eftir því hve langt maður fór frá höfðagaflinum hans og var orðið 0 úti í hinu horninu á herberginu. Ráðlagði ég honum að færa sig alveg út í hitt hornið á herberginu því þessi geislun kom greinilega frá næstu íbúð. Heyrði ég svo ekki í honum fyrr en mánuði síðar þegar hann bað mig að koma aftur og hitta sig.Þegar ég hitti hann tók ég strax eftir að hann leit mun betur út en síðast er ég hitti hann og sagði hann mér að hann væri hreinlega búinn að sofa eins og steinn á nóttunni síðan hann færði rúmið sitt ! Svo sagði hann mér að einhver hefði víst komið og gert eitthvað í næstu íbúð við hann og hann vildi láta mig kanna hvernig ástandið væri hjá sér og mér til undrunar var öll geislun horfin úr veggnum hjá rúminu hans. Fórum við að ræða málin meira og komst ég að því að nágranni hans hafði látið setja hjá sér straumbeini sem tók geislunina úr jarnagrindinni í veggnum á milli þeirra. Þarna sá ég svart á hvítu hve alvarlegt það getur verið þegar flökkustraumarnir fara á kreik og maður er ekki einu sinnu óhultur í sinni eigin íbúð ef ástandið er slæmt í þeirri næstu. Vert er líka að segja frá því að hann er búinn að búa þarna í um 10 ár….hann svefnlítill, konan í næstu íbúð líka. ( Hún færði líka rúmið sitt og sefur miklu betur) maðurinn þar við hliðina fékk krabbamein og maður þar við hliðina á við einhver dularfull veikindi að stríða.Ásamt því að þessum ágæta manni líður mun betur af parkinson veikinni og er að hugsa um að minnka lyfin sín…en að sjálfssögðu í samráði við sinn lækni. ENDILEGA DEILIÐ ÞESSU FYRIR MIG SVO VIÐ GETUM HJÁLPAÐ FLEIRUM !